Reykjavíkurborg úthlutar menningarstyrk til Arctic Space
- Sigríður Maack
- Feb 3
- 2 min read
Updated: Mar 23

Úthlutun styrkja menningar, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar á sviði menningarmála fyrir árið 2025 fór fram 30. janúar í Iðnó. Arctic Space hlaut styrk annað árið í röð, að þessu sinni 800.000 krónur.
Sigríður Maack, stofnandi Arctic Space og forseti Arkitektafélags Íslands, segir styrkinn kærkominn og þakkar Reykjavíkurborg fyrir trúna á starfsemi Arctic Space og mikilvægi arkitektúrs í menningarlífi borgarinnar.
„Þessi styrkur er undirstaða þess að hægt er að starfrækja sértækt sýningarrými fyrir arkitektúr og erum við afar þakklát fyrir sýndan stuðning. Við munum halda áfram að halda úti öflugu starfi til að efla sýnileika og samfélag arkitektúrs á Íslandi,“ sagði Sigríður í tilefni afhendingarinnar.
Arctic Space hefur verið starfrækt í tvö ár með það að markmiði að vekja áhuga almennings á arkitektúr, skapa vettvang umræðu og fræðslu og rækta samstarf við aðila erlendis, einkum með áherslu á norðurslóðir.
· English · The City of Reykjavík awarded its 2025 cultural grants on 30 January at Iðnó. Arctic Space received a grant for the second year in a row, this time amounting to ISK 800,000.
Sigríður Maack, founder of Arctic Space and President of the Association of Icelandic Architects, expressed her gratitude and thanked the City of Reykjavík for its continued support and recognition of Arctic Space’s work, as well as the importance of architecture in the city’s cultural life.
“This grant provides the foundation that allows us to operate a dedicated exhibition space for architecture, and we are truly grateful for the support shown. We will continue our efforts to strengthen the visibility and community of architecture in Iceland,” Sigríður Maack said in response to the grant announcement.
Arctic Space has been active for two years, to spark public interest in architecture, providing a platform for discussion and education, and fostering international collaboration—particularly with a focus on the Arctic regions.