TEIKNAÐ AF KONUM – brautryðjendur í arkitektúr
08.05.26 - 31.01.27

sýnendur · exhibitors: Arctic Space
tímabil · period: 08.05.26 - 31.01.27
Teiknað af konum er lifandi gagnasafn sem hýsir verk og sögu íslenskra kvenna í arkitektúr og skipulagi. Hér er hið byggða umhverfi skoðað í nýju ljósi og tengingar milli kynslóða og landamæra dregnar fram.
Sýningin BRAUTRYÐJENDUR er fyrsti vísir að viðameira verki og gefur innsýn í djúpan gagnabrunn verkefnisins. Sjónum er beint að þeim 28 konum sem luku námi í arkitektúr fram til ársins 1980.
Þetta eru og voru framsýnir brautryðjendur sem sóttu sér menntun út fyrir landsteinana – og sumar áttu reyndar rætur annars staðar. Sumar sneru heim til að byggja upp og leggja net nýs skipulags yfir íslenska bæi og borgir, móta stjórnsýslu sveitarfélaga og efla fagfélagið til að byggja upp þann mikilvæga menningarramma sem fagið hvílir á – á meðan aðrar kusu sér starfsvettvang erlendis.
Áhrif þeirra og faglegur metnaður hefur sett varanlegt spor á íslenska byggingarlist en þau hafa jafnframt náð langt út fyrir Ísland. Þar má telja til framsæknar skólabyggingar í Frakklandi og félagslegar byggingar í Svíþjóð – sumar svo mikilvæg tímamótaverk að þær hafa verið friðaðar vegna menningarsögulegs gildis. Byggingar og verk þeirra liggja enn víðar; meðal annars í Bandaríkjunum, á Ítalíu – í hjarta norræns samstarfs í Færeyjum, endurreisn tuga kastala í Skotlandi og í skipulagsmálum í Mósambík.
Sýningin er fyrsti vísirinn að heildstæðri gagnaöflun um fyrstu konurnar sem útskrifast sem arkitektar og veitir innsýn í það með teikningum, ljósmyndum og vinnugögnum sem eru hluti af hinu mikla lífsstarfi og höfundarverki þessarra kvenna. Í myndbandsupptökum segja konurnar sjálfar frá reynslu, áskorunum og sigrum – og hvernig þær beittu arkitektúr af ástríðu til að skapa betra samfélag.
Á meðan á HönnunarMars stendur er unnið í rauntíma að því að dýpka stafræna gagnagrunn Teiknað af konum arkívinu. Gestum gefst kostur á að bæta við fróðleik, sögum eða athugasemdum og taka þannig beinan þátt í að stækka arkívið og tengja þræðina enn frekar. Sýningin verður opin fram á haust.
· English ·
DRAWN BY WOMEN: Pioneers in Architecture is a living archive and database housing the works and history of Icelandic women in architecture and urban planning. It serves as a platform where the built environment is viewed through a new lens, highlighting connections across generations and borders.
The exhibition PIONEERS is the first iteration of a much larger work, drawing from the project’s extensive database. It focuses on the 28 Icelandic women who completed their architectural studies before 1980. These are and were visionary and sharp pioneers who sought their education abroad – some of whom, in fact, had international roots. Some returned to build and weave a new fabric of urban planning across Icelandic towns and cities, shaping public administration and strengthening professional associations to establish the vital cultural framework the profession relies upon, while others established their careers internationally.
Their influence and professional ambition have left a lasting mark on Icelandic architecture and reached far beyond its shores. Their portfolio includes progressive school buildings in France and social housing in Sweden – some of which are such significant milestones that they are listed for their cultural and historical value. Their works are found worldwide: in the United States, in Italy – at the heart of Nordic cooperation in the Faroe Islands, in the restoration of dozens of castles in Scotland, and in urban planning in Mozambique.
The exhibition serves as the first iteration of a comprehensive future project, presenting drawings, photographs and working documents that form part of the vast life’s work and creative legacy of these women. In video recordings, the women themselves reflect on their experiences, challenges and triumphs – and how they passionately utilised architecture to build a better society.
The material presented here is a fragment of an ongoing process. Throughout Design March, the digital database of the Drawn by Women archives is being expanded in real-time. Guests are invited to contribute information, stories, or comments, participating directly in growing the archive and further connecting the threads.


